Sigurður stýrir karla- og kvennaliði Keflavíkur á næstu leiktíð
Falur Harðarson hefur ákveðið að stíga til hliðar með þjálfun á kvennaliði Keflavíkur fyrir næstu leiktíð. Falur tók við kvennaliðinu fyrir síðasta tímabil af Jóni Halldóri Eðvaldssyni, en Falur stígur til hliðar sökum anna. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur þakkar Fal Harðarsyni fyrir gott samstarf með kvennalið Keflavíkur og mun hann ekki fara langt frá félaginu á næstu misserum, enda einn af reynslumeiri mönnum innan Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og með sterkt Keflavíkurhjarta.
Gengið hefur verið frá ráðningu á nýjum þjálfara fyrir kvennalið Keflavíkur á næstu leiktíð, en það mun vera Sigurður Ingimundarson. Sigurður mun því stýra bæði karla- og kvennaliði Keflavíkur á næstu leiktíð. Sigurður þjálfaði kvennalið Keflavíkur á árunum 1992-1996 og urðu stelpurnar Íslandsmeistarar öll árin nema árið 1995. Við bjóðum Sigurð velkominn aftur innan raða kvennaboltans.
Falur Harðarson stígur til hliðar sökum anna
Siggi Ingimundar mun stýra báðum liðum næstu leiktíð