Fréttir

Körfubolti | 25. september 2004

Sigurður þjálfari er ánægður með þróunina

Heimasíðan hringdi í Sigga Ingimundar eftir sigurleikinn gegn Svíunum í dag.

"Við spiluðum hörkuvel í dag. Það var okkar markmið að bæta okkur í hverjum leik og það hefur tekist, ég er ánægður með það. En það var kannski óþarfi að vera svona lélegir í fyrsta leiknum. Það gerði framfarir þó vissulega auðveldar" sagði Siggi í gríni.

Hvernig hafa nýju Kanarnir reynst?

"Kanarnir hafa verið misjanfir. Glover er svaka leikmaður, fjölhæfur og öflugur. Hann virðist vera happafengur fyrir okkur. Miggins var meiddur í heilt ár, það vissum við, og hann hefur greinilega tapað niður einhverju af sinni getu. Hann hefur þó orðið betri með hverjum leik, svona rétt eins og liðið, og aldrei að vita nema hann verði orðinn frábær eftir nokkra daga."

Hvernig er styrkleikinn á liðunum?

"Mér finnst finnska liðið vera mjög sterkt, ekkert ósvipað t.d. portúgölsku liðunum sem við höfum verið að mæta í Evrópukeppninni. Við eigum að vera sterkari en hin liðin og ég held að tapið gegn norska liðinu Bærum hafi alls ekki gefið rétta mynd af styrkleikum liðanna."

Er það ekki skrýtið að eiga enn séns á sigri í mótinu, eftir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjunum?

"Svona er nú bara mótafyrirkomulagið, lokastaðan í riðlinum skiptir öllu fyrir úrslitin. Það er alþekkt að allir geti unnið alla og þá skipta innbyrðis viðureignir öllu máli. Nú er bara að vona að Finnanir spili af fullum krafti í kvöld gegn Bærum og þá erum við komnir í úrslit. Það væri frekar undarlegt ef Finnarnir færu að tapa þeim leik, þeir eru miklu sterkari.!

Ok, við vonum að við sjáum Kef-Kouvot í úrslitum á morgun, biðjum að heilsa strákunum.

"Skila því."