Sigurhátiðin heldur áfram
Keflavík varð Íslandsmeistari þriðja árið í röð á laugardag, eftir sigur á Snæfell 88-98. Keflavík sigraði því Snæfell 3-1 í úrslitum annað árið í röð. Það voru fjölmargir stuðningsmenn Keflavíkur sem mættu í Fjárhúsið á Stykkishólmi til að hvetja sína menn. Stuðningsmenn voru mættir klukkutíma fyrir leik í 2. rútum frá Keflavík og mjög margir komu líka á einkabílum. Leikmenn gistu á hóteli í Borgarnesi nóttina fyrir leik og stilltu saman strengi sína fyrir átökin. Það var því einskonar Evrópustemming í hópnum enda orðið sjóað í gista á hótelum fyrir leiki.
Keflavík byrjaði með látum í leiknum og setti Maggi Gunn. línurar fyrir leikinn strax í upphafi. Maggi var ekki sáttur við framistöðu sína í síðasta leik, fekk sér nýja klippingu fyrir leikinn. Maggi setti niður 2 þrista stax í fyrsta leikhluta og var greinilega tilbúinn í leikinn strax frá fyrstu sek. Jonni var einnig að leika mjög vel, en hann hefur vaxið gríðalega í úrslitakeppninni. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 22-33 og áhorfendur vel með á nótunum.
Keflavík byrjaði annan leikhluta á sömu nótum og áttu margar hraðar sóknir og stjórnuðu hraðanum mjög vel. Við komust mest í 13 stiga forskot í leikhlutanum. Í seinni hluta leikhlutans fóru leikmenn Snæfels að vakna og bætu vörnina. Þeir virtust á þessum kafla ná að halda í við Keflavík, og náðu að jafna leikinn. Keflavík skoraði 3 síðustu stigin og staðan í háfleik 50-53 fyrir Keflavík. Áhorfendur beggja liða fóru sáttir í hlé enda leikurinn verið frábær skemmtun tveggja góðra liða og góð tilþrif sáust eins og troðslur, góð hittni í þriggja stiga skotum, hraði og varin skot.
Keflavík náði aftur góðu forskoti í seinni hálfleik en Snæfel gafst þó aldrei upp og náði að haldi í við Keflavík þangað til undir lok leiks. Þegar heimamenn voru að gera sig líklega til að ná Keflavík, setti Maggi niður þrist og sló að allar vonir heimamanna. Forskotið sem Keflavík náði í upphafi leiks, helt því og Keflavík náði að landa Íslandsbikarnum árið 2005.Gríðalegur fögnuður braust út í leikslok meðal stuðningsmanna Keflavíkur.
Bestir Keflavíkinga í leiknum voru Maggi og Jonni. Maggi byrjaði leikinn af miklum krafti og var með góða nýtingu í leiknum, setti niður 6 þrista úr 11 tilraunum, öll vítin, og var með 67% nýtingu inn í teig og alls 29 stig. Jonni spilaði frábæra vörn skoraði 18 stig og tók 8 fráköst. Jonni er mjög snöggur leikmaður og var fljótur að refsa, gerðu menn mistök. Nick sem var valin besti leikmaður úrslitakeppninnar átti góðan leik. Nick sem er mjög traustur leikmaður og mikil sigurvegari í sér, hann skoraði 22 stig, átti 9 stoðsendingar og tók 14 fráköst. Tony sem kláraði þriðja leikinn í Keflavík fyrir okkur með stórleik í seinni hálfleik skoraði 23 stig, var með 9 fráköst og hélt Calvin Clemmons niðri. Sverrir lék góða vörn, stjórnaði leiknum vel, átti margar frábærar sendingar fram völlinn og skoraði 6 stig.
Stemmingin í liðinu er frábær, liðsmenn þekkja hvorn annan mjög vel og eru mjög samstiltir. Reynslan er mjög mikil, þó meðalaldurinn sé aðeins rúm 24 ár. Þar spilar Evrópukeppnin sterkt hlutverk. Keflavík hefur á að skipa tveimur bestu þjálfurum á landinu sem hafa mikla reynslu bæði sem leikmenn og þjálfarar. Þeir ná mjög vel saman og skipta með sér hlutverkum á leikjum. Stuðningsmenn Keflavíkur eru þeir bestu á landinu, styðja sitt lið allt til enda. Þeir mæta vel á leiki og elta liðið á útivelli. Þeir syngja og hvetja og hafa endalausa trú á liðinu. Það skein í ljós á leiknum að allur þessi fjöldi sem mætti á leikinn og var byrjaður að syngja löngu fyrir leik, var komið til að taka á móti bikarnum og fara aftur með hann til Keflavíkur. Þessi trú sem stuðningsmenn hafa á liðinu smitar út frá sér og hjálpar leikmönnum að hafa rétt hugarfar í leikjum sem þessum. Við erum bestir og vitum að því.
Keflavík er því Íslandsmeistari í áttunda skipti og í þriðja árið í röð, bæði í karla og kvennaflokki. Hreint magnað!!!!!!
Sigurhátiðinn hélt svo áfram og náði hámarki í Keflavík um kvöldið og var frábær samstaða og stemming meðal bæjarbúa. En við erum langt frá því hættir að fagna enda eins og góður Keflavíkingur sagði ''við verðum nú bara Íslandsmeistarar einu sinni á ári.''