Sigursæl helgi hjá strákunum að baki
Tveir heimaleikir - tveir sigrar.
Á föstudaginn komu Grindvíkingar í heimsókn og úr varð spennuleikur, eins og við mátti búast. Keflavík hafði þó betur í lokin, ekki síst sökum varnartilburða Sverris Þórs, en eins og oft áður stal hann mikilvægum boltum á örlagastundu. Þeir kumpánar Derrick og Nick voru drjúgir í leiknum og 3ja stiga hittnin var góð, alls 9 af 21 sem er 42%. Annars var leikur okkar manna ekki góður en samt nógu góður til að vinna leikinn. Lokastaðan var 94-90.
Sólarhring síðar, á laugardagskvöldið komu síðan Ísfirðingar í heimsókn. Ágætis aðsókn var á leikinn sem var skemmtilegur á að horfa fyrir heimamenn. Eftir jafnræði á upphafsmínútum tók Keflavík öll völd. Staðan 60-48 í hálfleik og 124-89 í lokin, 35 stiga sigur. Flott tilþrif sáust, sérstaklega hjá Fannari og Jonna sem báður áttu hörkutroðslur. Fannar lék af fullum krafti og er greinilega kominn í gírinn. Hann gerði 22 stig og tók 10 fráköst. Gunnari Einarssyni var vikið úr húsi fyrir samskipti sín við einn Kanann hjá Ísafirði. Þetta voru reyndar afar saklausir pústrar og algerlega óþarfi hjá dómurum leiksins að vísa þeim úr húsi, villa hefði verið nóg. Annars var þessi leikur eins og létt æfing og menn gátu látið ljós sín skína.
Jonni í baráttunni yfir körfuhringnum