Fréttir

Sjö skrifa undir
Karfa: Konur | 7. júní 2012

Sjö skrifa undir

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur gengið frá samningum við sjö leikmenn mfl.kvenna. En það eru þær frá vinstri: Soffía Rún Skúladóttir, Lovísa Falsdóttir, Thelma Lind Ásgeirsdóttir, Sandra Lind Þrastardóttir, Katrín Fríða Jóhannsdóttir, Aníta Eva Viðarsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir. Með leikmönnunum á myndinni er þjálfarinn Sigurður Ingimundarson en hann tók við stýri kvennaliðsins af Fal Harðarsyni. Þess má til gamans geta að Bryndís Guðmundsdóttir, er komin heim á nýjan leik eftir stutta viðveru í Vesturbænum hjá KR.