Fréttir

Körfubolti | 5. mars 2003

Sjötti sigur KEF-KVENNA á Haukum á sunnudaginn, 73-63

Heimasíðan var óvirk um helgina en nú hefjum við skriftir að nýju. Helgin skilaði bæði kvennaliði og karlaliði öruggum sigrum í næst síðustu umferðum Deildarkeppninnar og nú er aðeins einn leikur eftir hjá báðum liðum.

Kvennaliðið vann 10 stiga sigur á Haukunum, 73-63, og sendi þar með Haukana niður í 2. deild. Leiðinlegur endir fyrir Hauka sem hófu leiktíðina af krafti. Þær hafa á ungu og efnilegu liði að skipa og vöktu athygli fyrir vaska frammistöðu, m.a. munaði aðeins hársbreidd að þær kæmust í bikarúrslitaleikinn.

En Keflavík hefur sigrað Hauka ansi oft í vetur, bæði í deild og Kjörískeppni, alls sex sinnum. Leikurinn á sunnudaginn var þar engin undantekning, þó munurinn hafi verið minni en oft áður. Sonia var drjúg við stigaskorun, setti 23, en annars fer leikurinn ekki í sögubækur sem einn af bestu leikjum vetrarins, til þess var varnarleikurinn of slitróttur.
Öruggur sigur staðfesti þó yfirburði liðsins þegar veturinn er skoðaður í heild og Deildarmeistarar Keflavíkur hafa nú 10 stiga forskot á KR þegar aðeins einn leikur er eftir, en þá mætast einmitt toppliðin. Sá leikur verður eflaust stórskemmtilegur, því KR-ingar hafa sótt verulega í sig veðrið að undanförnu, endurheimt leikmenn úr meiðslum og fengið öflugan Kana til liðsins. Keflavík – KR verður mánudaginn 10. mars kl. 19.15.