Skelfileg byrjun í Hólminum - fjörgurra stiga tap
Það hefði mátt halda að vörnin hefði orðið eftir í Keflavík þegar liðið hélt til Stykkishólms í dag. Enda léku Snæfellingar sér að því að skora að vild og náðu fljótlega yfirburða forskoti, 29-15. Aðeins vaknaði liðið til lífsins og í hálfleik var munurinn kominn niður í 4 stig, 54-50. Arnar Freyr átti góða innkomu, skoraði 11 stig. En aftur duttu menn úr gír í seinni hálfleik og Snæfell gekk á lagið og náði 11 stiga forskoti fyir upphaf síðasta leikhluta. Keflavík ætlaði þá að reyna að vinna leikinn og strákarnir jöfnuðu í stöðunni 88-88. Þar fór Nick fyrir sínum mönnum, en síðustu mínúturnar voru síðan slakar og Snæfell vann verðskuldað 4 stiga sigur 94-90. Nick og Derrick voru atkvæðamestir okkar manna með sín 28 stigin hvor, Gunni E og Arnar skoruðu 11.
Falur þjálfari var óhress með dómgæsluna og sagði sem dæmi að við hefðum fengið 17 víti en Snæfell 35 í "miklum baráttuleik undir körfunum". Sérstaklega var hann ósáttur með atvik undir lok leiks, en þá var Snæfell 2 stigum yfir, 92-90 og nokkrar sekúndur eftir. Nick keyrir inn í vörn Snæfells og er honum ýtt frá körfunni þegar hann stekkur upp en nær að kasta boltanum i átt að körfunni. Þá reynir einn Snæfellingurinn að verja skotið en slær í spjaldið (!!). En ekkert er dæmt. Falur sagði að réttast hefði verið að dæma körfu góða vegna þess að slegið var í spjaldið meðan boltinn var í skoti að körfunni og einnig hefði átt að dæma brot, sem sagt karfa góð og eitt víti. En dómarinn kaus að flauta ekki og Snæfell fékk tvö víti í lokin sem þeir nýttu.
Með þessum ósigri nánast tryggði Keflavík sér þátttöku í fleiri útileikjum en heimaleikjum í úrslitakeppninni í vor, því 1. og 2. sætið eru nú nánast utan seilingar, því við erum 4 stigum á eftir bæði Grindavík og Snæfelli. Þetta er áhyggjuefni því við höfum verið slakir á útivelli og tapað þar fleiri leikjum en við höfum unnið. Þetta þarf að laga. Það verður að teljast merkilegt að menn mæti í einn mikilvægasta leik deildarinnar án þess að vera klárir í slaginn frá fyrstu mínútu. Því þetta er alltaf sama sagan, þegar við erum grimmir og leikum vörn af krafti vinnum við en þegar við mætum kærulausir til leiks þá töpum við. Annars voru úrslit kvöldsins ansi sérstök því Njarðvík, Grindavík, Keflavík og KR töpuðu öll. Því er gremjulegt að hafa ekki nýtt þetta færi til að laga stöðuna í deildinni.
En þetta er búið og nú þurfum við að ná upp alvöru stemmingu fyrir laugardaginn, því sá leikur skiptir öllu máli, sjálfur Bikarinn er í húfi. Athyglisvert atvik átti sér stað í Njarðvík en Páli Kristins var vikið úr húsi fyrir að veitast að dómara leiksins, eftir því sem okkar heimildir herma. Hann verður því ekki með á laugardaginn, því reglan er sú að aganefnd tekur mál fyrir á þriðjudegi og úrskurðar leikmenn í bann ef ástæða þykir. Leikbann tekur venjulega gildi að hádegi næsta föstudag á eftir.