Skelfilegar lokamínútur orsökuðu tap gegn Grindavík
Leikurinn í gær var að sumu leyti skemmtilegur, því hann var hraður og fjörugur og bauð upp á ágætis spennu og mörg flott tilþrif á báða bóga. Páll Axel Grindvíkingur stal senunni þegar hann dúndraði niður þristum í massavís í síðasta leikhluta og náði forystunni fyrir gestina sem dugði til sigurs.
Leikur Keflavíkurliðsins var þó ekkert til að hrópa húrra fyrir ef undan er skilinn smá kafli í lok þriðja og upphafi fjórða leikhluta. Þá náðu strákarnir að byggja upp 13 stiga forskot, 78-65, með kraftmikilli vörn og góðri keyrslu. En um leið og forystunni var náð var eins og að leikmenn Keflavíkurliðsins héldu að björninn væri unninn og þeir hreinlega hættu að leika vörn.
Gestirnir gengu á lagið og röðuðu niður körfunum, ekki síst áðurnefndur Páll Axel og Darryl Lewis sem virtist geta skorað að vild (setti 37 kvikyndi í leiknum). Það var einna helst Magnús Gunnarsson sem náði að hindra Lewis en annars komst hann yfirleitt óáreittur að körfunni og þá var ekki að sökum að spyrja.
Síðustu átta mínúturnar skoraði Keflavík aðeins 14 stig á móti 32 og lokastaðan var 92-97 Grindavík í vil. Gestirnir náðu forystunni þegar rúmar fjórar mínútur lifðu leiks og þá rann okkar mönnum allur ketill í eld og allt hrundi. Þegar hefur verið minnst á varnarleikinn, en þar á ofan einkenndist sóknarleikurinn af örvæntingu og rugli, en það kann ekki góðri lukku að stýra.
Jonni og Kevin skiluðu sínum hlutverkum nokkuð vel í leiknum og í raun var alger synd að þeir fengu ekki úr meiru að moða, því það var eins og að Keflavík ætlaði að skjóta andstæðingana í kaf og leikmenn hreinlega gleymdu að nýta yfirburðina undir körfunum, því ekki gátu Grindvíkingar stoppað okkar menn þar, þeir fengu bara ekki boltann.
Annars var Falur nokkuð sprækur og Gaui Skúla og Gunni Einars áttu spretti, þótt Gaui hafi gert nokkur mistök í lokin og Gunna voru mislagðar hendur á vítalínunni. Damon var ekki svipur hjá sjón og heilt yfir var liðið að leika langt langt undir getu.
Nú jæja, ekki þýðir að gráta Björn bónda, heldur safna liði. Keflavíkurliðið er á góðum degi sterkasta lið landsins, á því leikur ekki nokkur vafi. Það eru hins vegar ekki bara góðir dagar í þessum bransa, heldur koma inn á milli nokkrir þokkalegir og svo líka nokkrir slæmir. Í gær var slæmur dagur. Það sem við þurfum að skilja er að þegar liðið er ekki í stuði, er hægt að fara langt á grimmri vörn og öguðum sóknarleik, en hvorugt var til staðar í gær. Því fór sem fór.
Næst á dagskrá eru Valsmenn í Intersport-deildinni á þriðjudaginn og síðan KR í Kjörísnum næsta föstudag. Þá reynir aftur á okkur og við vonumst eftir að rétt hugarfar og mikil grimmd skili okkur í úrslitin. Ekki má heldur vanmeta Valsara, því þeir unnu jú Njarðvík sem er meira en við höfum gert.