Skemmti- og styrktarkvöld hjá körfunni laugard. 27. sept. í Stapa
Hin árlegu herra- og konukvöld körfuknattleiksdeildarinnar verða þetta árið sameinuð í eitt allsherjar skemmti- og skytktarkvöld sem fram fer í Stapa laugard. 27. sept.
Mikið verður lagt í að gera kvöldið sem skemmtilegast og vonandi bregðast stuðningsmenn vel við og nota tækifærið til að skemmta sér ærlega um leið og þeir styðja við bakið á körfunni.
Dagskráin:
Tekið á móti gestum með fordrykk
- - -
Mexíkanst hlaðborð
- - -
Fjölbreytt skemmtidagskrá
- - -
Dansleikur með hljómsveitinni Á móti sól
Skemmtidagskráin verður á þessa leið:
Veislustjóri verður hinn baneitraði Svali Björgvinsson
- - -
Auddi úr 70 mínútum á POPP TV blandar einn drykk eða tvo
- - -
Hljómsveitin Breiðbandið flytur kunna slagara
- - -
Happdrætti og ýmsir leikir til styrktar og skemmtunar
- - -
Sitthvað fleira sem greint verður frá á næstu dögum
Miðasala:
Hjá leikmönnum mfl. ka. og kv.
- - -
Hjá stjórnarmönnum
- - -
Í Kóda hjá Kristínu
- - -
Í Skóbúðinni hjá Hermanni
Verð: 3.500 kr. fyrir mat, skemmtun og ball
Verð á ball eingöngu: 1.500 kr.