Fréttir

Körfubolti | 26. febrúar 2004

Skemmtilegur leikur í vændum í kvöld

Aðeins þrjár umferðir eru eftir í INTERSPORT-deildinni og nú skiptir hver leikur miklu máli um endanlega röð fyrir úrslitakeppnina. Okkar menn eiga fræðilegan en afar lítinn möguleika á öðru af toppsætunum tveimur, en raunhæft séð, þá er okkar fókus á að halda þriðja sætinu. Leikurinn í kvöld skitpir bæði liðin máli, því KR er í baráttunni um sæti 3 til 7 og þar getur allt gerst. Þó er erfitt að segja hvernig liðin nálgast þetta verkefni, því ekki getur heimasíðan áttað sig á því hvort liðin í neðri hluta úrslitakeppninnar vilji heldur lenda á móti Snæfelli, Grindavík, Keflavík eða Njarðvík??

KR-kaninn meiddist á hendi og óvíst er hvort hann leiki, en við reiknum þó með honum í kvöld. KR hefur á vel mönnuðu liði að skipa, en oft ná þeir illa saman og leika óskipulagðan körfubolta. En ef þeir komast í stuð eru þeir verulega öflugir. Baráttan verður lykilatriði í kvöld, því það lið sem mætir grimmara til leiks getur náð undirtökunum, en það gerist oftar en ekki í alvöruleikjum að þeir sem byrja betur vinna.

Okkar menn hafa verið gríðarlega sterkir á heimavelli um langt skeið, en leikir að heiman hafa verið alla vega, sumir meira að segja arfaslakir. Strákarnir og þjálfararnir hafa eflaust farið vel yfir þetta og menn munu vilja sannfæra sjálfa sig um að við getum leikið góðan körfubolta hvar sem er. Lykilinn að þessu er hugarfarið, það höfum við séð hundrað sinnum.

Fannar kom sterkur inn í síðasta leik og þegar hann bætist í liðið undir körfunum er liðið orðið ansi stórt og vígalegt. Bakverðirnir hafa verið misjafnir, en nú er kominn tími til að stilla miðið og sökkva nokkrum af þessum opnu þristum sem við fáum í hverjum leik. Vonandi verður stemming í Vesturbænum enda hörkuleikur í vændum.

ÁFRAM KEFLAVÍK!!