Fréttir

Sköllunum skellt - Fjórir sigrar í röð í deild
Karfa: Karlar | 16. nóvember 2012

Sköllunum skellt - Fjórir sigrar í röð í deild

Keflvíkingar skelltu Skallagrími í Domino´s deild karla í körfuknattleik í gær, 81-72. Keflavík hafði undirtökin allan leikinn og leiddi með á bilinu 10 - 15 stigum mestan part. Undir lokin sóttu þó gestirnir hart að heimamönnum og fór um margan Keflvíkinginn, minnugir leiknum gegn KR fyrr á tímabilinu. Fór það þó svo að Keflvíkingar kláruðu leikinn og innbyrtu þar með sinn fjórða sigurleik í röð í deildinni eftir að hafa byrjað tímabilið mjög illa. Michael Craion var stigahæstur hjá Keflavík með 25 stig, Darrel Lewis var með 20 stig og hinn nýji Stephen McDowell setti niður 18 og gaf 7 stoðsendingar.

Myndin sem fylgir  fréttinni er af Stephen McDowell og er fenginn að láni hjá www.vf.is