Skráning hafin, allir í körfu
Opnað hefur verið fyrir rafræna skráningu iðkenda á keflavik.is/karfan og munu æfingar allra flokka Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefjast samkvæmt æfingatöflu mánudaginn 2. sept.
Fyrir þá sem óska aðstoðar við skráningu verða meðlimir Barna- og unglingaráðs til taks í Íþróttahúsi Keflavíkur 2. hæð n.k. fimmtudag 29. ágúst. milli kl. 17-20. ATH. að allir iðkendur verða að vera skráðir.
Æfingatöfluna og þjálfara deildarinnar má sjá á heimasíðunni fljótlega í næstu viku.
ALLIR nýir iðkendur deildarinnar fá frían keppnisbúning (treyja og stuttbuxur).
ALLIR skráðir iðkendur í yngri flokkum félagsins fá frítt á leiki meistaraflokksliða félagsins.
ÁFRAM verður boðið upp á frábærar morgun-/aukaæfingar tvisar í viku fyrir 8. bekk og eldri og hefjast þær æfingar í byrjun oktober.