Skráning hafin í æfingabúðir Jenny Boucek
Skráning er hafin í æfingabúðir Jenny Boucek á kvennarad@keflavik.is
Tilvalin jólagjöf fyrir körfuboltastúlkuna en hægt er að kaupa gjafabréf til að lauma í jólapakkann.
Jenny Boucek fyrrverandi leikmaður Keflavíkur í körfuknattleik, fyrrum WNBA leikmaður og núverandi aðstoðarþjálfari hjá Seattle Storm í WNBA mun halda æfingabúðir fyrir stúlkur fæddar 2006 og eldri dagana 10. – 11. janúar 2015. Æfingabúðirnar verða haldnar í Keflavík og mun Jenny verða yfirþjálfari og stýra þeim með aðstoð reyndra þjálfara og leikmanna. Æfingabúðirnar eru ætlaðar stúlkum á öllu landinu og úr öllum félögum enda einstakt tækifæri að fá að æfa undir handleiðslu þessa frábæra og reynslumikla þjálfara.