Skvísukvöld KKDK 15. mars
Skvísukvöld KKDK verður haldið föstudaginn 15. mars 2013. Kvennaráð deildarinnar sér um skipulagninguna, sem eitt og sér tryggir að engin skvísa á Suðurnesjum ætti að láta þetta fram hjá sér fara.
Dagskráin verður með glæsilegu móti eins og sést á myndinni hér að neðan. Miðasala er þegar hafin og kostar 4400 kr. inn, gjöf en ekki gjald eins og maðurinn sagði.
Skvísur, ekki láta þetta framhjá ykkur fara!
Mynd: Brans / Keflavíkurstúlkur urðu bikarmeistarar um helgina og munu þessar skvísur ekki láta sig vanta á skvísukvöld!