Fréttir

Karfa: Karlar | 14. janúar 2008

Slæmur 3. leikhluti varð okkur að falli

Það má segja að Keflavík hafi ekki fengið auðveldustu leiðina í bikarnum þetta árið frekar en oft áður.  Að mæta Snæfell á Stykkishólmi og öðru sinni sömu helgina var erfitt verkefni. Ákafir stuðningsmenn Keflavík mætu á Hólminn til að hvetja liðið áfram en það dugði ekki að þessu sinni og  klaufalegt 2. stiga tap staðreynd. Þriðji leikhluti varð okkur að falli rétt eins og gerist á síðasta tímabili í nokkur skipti og aðeins annað tapið vetur. Við eru þó efstir í deildinni og ætlum okkur að vinna deidar-og Íslandsbikarinn í ár.

Keflavík byrjaði mjög vel í leiknum á náði strax forustu. Okkar menn fengu mikið af opnum skotum og sérstaklega voru Maggi, B.A og Susnjara sprækir í fyrri hálfleik. Vörnin var einnig fín og staðan eftir 1. leikhluta 22-26 fyrir Keflavík.

Áfram hélt Keflavík að spila vel og raun pirrandi að ná ekki meiri forustu því einhvern vegin náðu heimamenn að hanga í okkur og sjá til þess að munurinn fór ekki yfir 10 stigin. Þegar Snæfell skoraði náðum við keyra  á þá og svara um hæl. Staðan í hálfleik var 41-52 og Maggi komin með 11.stig og B.A 10. stig.

Þriðju leikhluti hefur oft verið hræðilegur hjá okkar mönnum og sú var raunin að þessu sinni. Það var eins og menn væru hættir að spila vörn því heimamenn löbbuðu í gegnum vörnina aftur og aftur og tóku þar að auki sóknarfráköstin. Snæfellingar komust yfir og mest 7. stigum og staðan eftir 3. leikhluta, 62-64 (21-12 fyrir Snæfell í hlutanum)

Snæfellingar náðu að halda forustunni en Keflvíkinga ná sér aftur og í stöðunni 83-82. Hlynur skoraði og fékk villuna og setti niður vítið. 86-82 og 40 sek eftir. Walker minnkaði með 2 vítum. Snæfell átti boltann tóku skotið sem geigaði og tóku frákast og héldu þar sem 14 sek voru eftir brotið á Magna og leikhlé tekið. Keflvíkingar fékku kjörði og í raun óvænt tækifæri til að klára eða jafna leikin því Magni klikkaði úr báðum og Keflavík varð ekki ágengt gegn brjálaðri vörn Snæfells í lokin þar sem Tommy klikkaði á 3ja stiga skoti og uppskáru Snæfellingar sigur 86-84.

Ákaflega klaufalegt tap og vera okkar í bikarnum í ár lokið.  Margir leikmenn voru alls ekki að finna sig í leiknum og menn að spila langt undir getu. Sérstaklega var leiðinlegt að sjá Snæfellinga ná að hæga alveg á leiknum í seinnihálfleik.  Seinnihálfleikur var hægur og ekki skemmtilegur á að horfa.

Bestu menn Keflavíkur voru B.A með 26. stig, Maggi 14 stig, Susnjara 14. stig og Jonni 11. stig. Þeir sem komu að bekknum voru ekki tilbúinir í verkefni kvöldsins og var Gunni sá eini þeirra svo komst á blað ( 9 stig ). Tommy átti einnig slæman dag.

Tölfræði leiksins