Fréttir

Körfubolti | 12. apríl 2004

Slakað á í eina viku og svo fara menn að huga að næsta ári

Eftir mikla gleði s.l. laugardag hafa menn eflaust notað helgina til að jafna sig, enda erfiður vetur að baki, bæði hjá drengjunum okkar og stúlkunum. Á fimmtudaginn verður lokahóf körfuknattleiksdeildarinnar í KK-salnum að Vesturbraut (verður auglýst betur á morgun) og síðan á föstudag verður lokahóf KKÍ á Hótel Sögu.

Á næstu dögum verður strax hugað að næstu leiktíð. Nokkur mál eru þar opin ef svo má segja, m.a. þarf að ráða þjálfara hjá mfl. karla og kvenna. Uppi eru ákveðnar hugmyndir og verður þessum málum lokað á næstu dögum. Framundan er einnig aðalfundur og stjórnarkjör, en heimasíðan veit að formaðurinn, Hrannar Hólm, hyggst ekki gefa kost á sér í starfið að nýju og stendur nú yfir leit að eftirmanni. Hann hefur ekki í huga að hætta að vinna að körfuboltamálum í Keflavík, en vill segja skilið við formannsstarfið, í bili a.m.k, vegna anna.

Varðandi leikmannamál, þá eru ýmsir endar óhnýttir þar, sér í lagi hvað varðar erlendu leikmennina. Mikil ánægja var með þá félaga Nick og Derrick, en menn munu þó bíða ársþings KKÍ þar sem ekki liggur fyrir í dag hvaða reglur munu gilda um erlenda leikmenn á næsta ári. Eins má telja líklegt að þeir eigi þess kost að leika körfubolta fyrir stærri klúbba í Evrópu í kjölfar frábærrar frammistöðu þeirra (og félagsins) í Evrópukeppni í vetur. Ef tveir Kanar verða heimilaðir mun tvímælalaust verða leitað til þeirra félaga.

Íslendingarnir hafa ekki allir gert upp hug sinn ennþá, enda er gamla tímabilið enn "volgt" ef svo má segja. Vonir standa þó til að félagið snúi aftur að hausti með sama mannskap að mestu leyti, bæði hjá meistaraflokki karla og kvenna. Liðin eru bæði margfaldir meistarar og eiga marga titla að verja. Ýmsar breytingar geta þó átt sér stað, eins og alltaf, og mun heimasíðan greina frá þróun mála.