SLÁTURHÚSIÐ VIÐ SUNNUBRAUT! Ákall frá Stuðningsmannasveit Keflavíkur
Já kæru Keflvíkingar nú er komið á undanúrslitunum á lau. á móti ÍR og þarf Keflavíkurliðið á öllum okkar stuðning að halda og erum við þá ekki bara að >tala um okkur drengina í Stuðningsmannasveitinni heldur ALLA fylgismenn Keflavíkurliðsins! Það hefur soldið borið á því í gegnum tíðina að það séu ekki allir "jafn miklir stuðningsmenn" þ.e.a.s menn sem mæta bara á leikina og sitja þarna eins og steindauðar skötur og ætlast til þess að Keflavík vinni leikinn hjálparlaust, og geta ekki einu sinni séð það hjá sér að láta aðeins í sér heyra á meðan leik stendur. Sem betur fer þá eru ekki margir svona áhorfendur á meðal fylgismanna Keflavíkur en það hefur stundum borið á þessu, en þá er bara um að gera að taka þetta til sín og mæta tvíefldir á næsta leik, ekki satt ?!
Annars hafa Keflvískir áhorfendur ávallt fylgt sínu liði vel og verið viðstaddir alveg fjölmarga frábæra sigra liðsins á undanförnum árum. Og viljum við bara skora á alla Keflvíkinga að mæta vel og láta heyra hressilega í sér það sem eftir er þessa tímabils og hjálpa Keflavíkurliðinu að vinna alla þá titla sem í boði eru.
Jói, Beggi, Kristinn, Einar og Bjössi og allir hinir í Stuðningsmanna-krúinu vilja skora á áhorfendur hvort sem þeir sitja uppi í stúkunni eða niðri að skrúfa frá barkanum sínum og láta vel í sér heyra á laugardaginn næstkomandi.
Næsti bikar á dagskrá hjá okkur er Bikarmeistaratitillinn, og ætlum við okkur hann þann 8.feb. í Höllinni, það er engin spurning! Einnig viljum við skora á Keflvíkinga að fjölmenna á kvennaleikinn í Grindavík á fös. og koma þeim í úrslitin, því það væri ekki amalegt að fá tvöfaldan leik í Höllinni líkt og við gerðum á móti KR hér um árið, þeir sem fóru á þá leiki þekkja stemmninguna á þessum leikjum, alveg mögnuð!
En við fyrst þurfum við nú að komast í gegnum undanúrslitin en við í Stuðningsmannasveitinni höfum alveg fulla trú á Keflvíkurliðunum báðum og treystum á það að fá fullt hús hér í Sláturhúsinu á laugardaginn and blow the roof off the building!!
Áfram Keflavík
Kveðja,
StuðningsmannaSveit Keflavíkur