Smá innlegg í umræðuna um Hópbílabikarinn
Sigurður Elvar Þórólfsson, blaðamaður Morgunblaðsins, skrifaði í blað sitt ágætis hugleiðingu um Hópbílabikarinn og langaði Heimasíðunni að bæta aðeins við þær pælingar. Reyndar var Sigurður Elvar hvergi sjáanlegur á leikjum hinna fjögurra fræknu í Höllinni um síðustu helgi þannig að hann hefur ekki upplifað leikina og umgjörðina af eigin raun, en það er kannski önnur saga. Hvað um það, hann telur að núverandi fyrirkomulag sé óspennandi og vísar helst til þess að aðeins um 300 manns hafi mætt á úrslitaleikinn. Reyndar voru áhorfendur fyrri daginn töluvert fleiri, alls um 500 talsins. Heimasíðan telur reyndar að stemming meðal áhorfenda og leikmanna hafi verið prýðileg, þó vissulega hafi áhorfendur verið allt allt of fáir.
Heimasíðan er í flestum atriðum sammála Elvari. Heimasíðan veit líka til þess að forráðamenn Keflavíkur og Njarðvíkur börðust fyrir því að keppni hinna fjögurra fræknu færi fram í Njarðvík, einmitt vegna þess að þeir vissu að þar yrði umgjörðin betri, áhorfendur fleiri, húsið "fyllra" (sökum smæðar) og þar af leiðinni stemmningin betri, auk þess sem framkvæmd yrði auðveldari og kostnaður minni. En forráðamenn Tindastóls og Grindavíkur vildu ekki leika í Njarðvík vegna þess að þá færi keppnin fram á heimavelli eins liðsins og þar með hefði það lið óeðlilegt forskot.
Heimasíðan telur samt, að þrátt fyrir þetta "óeðlilega" forskot, hefði keppnin orðið allt önnur og miklu skemmtilegri ef hún hefði farið fram í Njarðvíkum. Stemmingin hefði verið meiri og húsið fullt. En ef keppnin er orðin léleg, hver er þá lausnin á þessu vandamáli til framtíðar? Elvar bendir á einn möguleika sem er að velja fyrirfram hvar keppnina skuli halda, t.d. í Grindavík 2004, Þorlákshöfn 2005, Sauðárkróki 2006 o.s.frv. Þetta er vissulega kostur og vel athugandi. Gallinn er hins vegar sá að mögulegt er að lítill áhugi sé á viðkomandi stað ef heimaliðið tekur ekki þátt.
Heimasíðan vill benda á annan möguleika. Hann er sá að keppnin fari ávallt fram á heimavelli eins þeirra félaga sem taka þátt í keppninni. Þannig er unnt að tryggja nokkuð góða aðsókn og auðvelda og ódýra framkvæmd. Spurningin er bara hvernig á að velja þann heimavöll? Þar eru nokkrir möguleikar sem vert er að íhuga. T.d. gæti liðið sem er "rankað" efst í keppninni átt rétt á heimavelli. Eða þá að liðið sem er efst í deildinni þá stundina. Eða þá að dregið yrði um leikstað. Eða þá að sótt yrði um framkvæmd. Þetta eru nokkrir möguleikar, eflaust eru þeir fleiri. Heimasíðan veit ekki hvaða lausn er best, en er þó sannfærð um að besta niðurstaðan fyrir umgjörð keppninar sé að halda hana á einhverjum "heimavelli", kannski ætti heimavallarrétturinn með einhverju móti að vera áunninn.
Sigurður Elvar telur að "nálykt" sé af keppninni, þ.e. að hún sé þegar farin að deyja. Þar verður hver að dæma fyrir sig. Heimasíðan veit bara að þeir þrír leikir sem fara fram í keppni hinna fjögurra fræknu hafa nánast án undantekinga verið "alvöru leikir", skemmtilegir og spennandi. Skemmst er að minnast úrslitalekja tveggja síðustu ára sem báðir voru spennandi fram á síðustu sekúndur og frábært sjónvarpsefni. Þarna keppa fjögur bestu lið landsins á hverjum tíma um titil sem allir vilja vinna, þó hann teljist ekki "stór" líkt og Bikartitill og þaðan af síður Íslandstitill. Samt er rétt hjá Elvari að velta þessu upp, því hreyfingin þarf stöðugt að endurskoða sínar keppnir. Á síðasta ársþingi voru uppi tillögur um breytingar á þessari keppni, en þær náðu ekki fram að ganga. Eflaust verða einhverjar breytingatillögur lagðar fyrir næsta ársþing og kannski hafa þær breytingar í för með sér. Breytingar til batnaðar.
En Elvar má líka líta í eigin barm, þegar horft er til vinsælda eða "vinsældaleysis" keppninnar. Staðreyndin er nefnilega sú að blað allra landsmanna, sjálft Morgunblaðið, hefur markvisst sniðgengið keppnina frá upphafi. Það vakti t.d. athygli að eftir undanúrslitin um daginn kom aðeins lítil klausa í Mogganum þar sem eingöngu var stuttlega talað við "Kristinn" Rúnarsson, þjálfara Grindavíkinga. Morgunblaðið sagði heldur ekki frá leikjunum fyrirfram og gerði akkúrat ekki neitt til að hjálpa körfuboltahreyfingunni að skapa stemmingu á keppninni og gera hana þannig að meiri viðburði.