Snæfell 1 - Keflavík 0: Skortur á krafti og einbeitingu hjá okkar mönnum í kvöld
Það var rétt í fyrsta leikhluta sem Keflvíkingar léku af krafti í kvöld í Stykkishólmi í ágætis stemmningu og fyrir fullu húsi áhorfenda, þar á meðal um 50 Keflvíkinga. Nick byrjaði vel og Keflavík leiddi með 5 stigum eftir 10 mín. leik, 18-23. Síðan kom góður kafli Snæfellinga og þeir komust í 26-23. Eftir það má segja að þeir hafi leitt leikinn allan tímann og var forystan yfirleitt á bilinu 2-10 stig það sem eftir lifði leiks. Keflavík gerði ágætis atlögu í lokin en það dugði ekki til. 80-76 var niðurstaðan og Snæfell leiðir nú í þessu einvígi 1-0.
Það vantaði einhvern veginn kraft og áræðni í leik okkar manna í kvöld. Hraðinn var enginn, fyrir utan byrjunina, og við létum Snæfellinga hægja allt of mikið á leiknum, eins og sést á stigaskorinu. Einnig var einbeitingin slök og sem dæmi má nefna að menn misnotuðu óvenju mörg opin skotfæri nálægt körfunni og hugsuðu ekki um að "stíga út", eins og sagt er, og því fengu heimamenn allt of mikið af sóknarfráköstum.
Derrick var duglegur í leiknum og skoraði vel, alls 26 stig og eins var Nick ágætur, en þó "köflóttur", hefði kannski þurft smá hvíld inn á milli. Fannar fann sig engan veginn og hefðu þjálfararnir mátt gefa Halldóri tækifæri því Hlynur var að gæta Fannars og hann vill síður elta mann sinn langt út á völl, en þar er Halldór sterkur. Jonni átti fína innkomu og var duglegur, fékk þó mikið höfuðhögg í fyrri hálfleik, en jafnaði sig að mestu leyti. Arnar Freyr hélt uppi ágætis hraða en Sverrir hægði full mikið á leiknum. Lítið bar á Magnúsi, en Gunnar átti góðan seinni hálfleik og hélt okkur inni í leiknum um hríð.
Varnarlega var leikurinn ekki sem verstur, þó fráköstin hafi verið slök. Fyrst var leikin svæðisvörn og virtist hún virka mun betur, þótt Dickerson hafi sett niður nokkra þrista. Hann hélt sig þó fyrir utan teiginn. Þegar maður á mann vörnin var leikinn náði hann hins vegar að splundra vörninni ansi oft og skapa verulegan usla. Dickerson var maðurinn á bak við sigur Snæfellinga ásamt Hlyn Bærings sem fór illa með okkar menn í fráköstunum, hirti um 20 slík.
En nú þurfa okkar menn að safna kröftum því enn eina ferðina er komið að "úrslitaleik" sem alls ekki má tapast. Við eigum mikið inni og liðið getur mun meira en það sýndi í kvöld. En Snæfellingar eru hörkulið, ekki síst varnarlega, og það verður að ná upp mun meiri hraða gegn þeim, t.d. með pressuvörn og/eða betri keyrslu.
Lélegur leikur að baki, en í næsta leik má bæta fyrir það. ÁFRAM KEFLAVÍK!!!