Snæfell 1 - Keflavík 2: Samantekt um tölur
Óskar Ó. Jónsson hefur af sinni alkunnu snilld fylgst vel með einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Hann hefur tekið saman grein á heimasíðu KKÍ þar sem skoða má alls konar samanburð.
Sumir hlutir koma kannski á óvart, t.d.
- Keflavík hefur tekið fleiri fráköst en Snæfell, bæði í vörn og sókn
- Snæfell hefur staðið sig betur í 3ja stiga skotum en Keflavík, bæði hvað varðar fjölda og hittni
Önnur atriði koma síður á óvart, t.d.
- Keflavík fær mun meira framlag frá "bekknum" en Snæfell
- Keflavík fær fleiri villur en Snæfell
- Keflavík skorar meira úr hraðupphlaupum.
Bestu menn einvígisins skv. einkunnagjöf Óskars eru í þessari röð:
- Derrick - einkunn 29
- Hlynur - 26
- Nick - 23
- Dotson - 19
- Whitmore - 13
- Magnús - 13
- Fannar - 12
- Sigurður Þ - 11
- Gunnar, Sverrir og Jonni - 10
Hér má sjá greinina í heild sinni.