Snæfell 1 - Keflavík 2: Síðbúin umfjöllun um þriðja leikinn
Leikur númer þrjú var eign Keflvíkinga, ef undan eru skildar fyrstu 10 mínúturnar þar sem jafnræði var með liðunum. Staðan 23-23. En Kef náði 9 stiga forystu í öðrum leikhluta og síðan kláruðu strákarnir dæmið með 14-1 spretti í þriðja leikhluta. Niðurstaðan var frækinn og öruggur 65-79 sigur. Staðan orðin 2-1 fyrir Keflavík sem nú þarf einn sigur enn til að verja Íslandsmeistaratitilinn.
Það kom berlega í ljós í þessum leik að Keflvíkingar áttu fleiri óþreytta menn í liði sínu en Snæfell. Þeir leikmenn sem mest höfðu leikið að undanförnu virkuðu allir þreyttir nema kannski Derrick og Dotson sem fráköstuðu vel og skoruðu. Þá kom breiddin í ljós hjá Keflavík því aðrir leikmenn "stigu upp" eins og stundum er sagt og tryggðu Keflavík sigurinninn.
Hjá Keflavík má nefna þá Sverri Þór, Magnús, Fannar og Jón Hafsteins sem allir léku glimrandi körfubolta og tryggðu okkar mönnum sigur. Sverrir fór á kostum í vörn, klippti Dickerson úr leiknum (sá skoraði 9), fann samherja sína (6 stoðs) og skoraði meira en hann er vanur (13 stig.), átti frábæran leik. Magnús hikaði hvergi og negldi niður góðum körfum, auk þess sem hann stal nokkrum mikilvægum boltum, var stigahæstur með 17 stig. Fannar átti flottan leik og náði nú að hafa betur í baráttunni gegn Hlyni Bærings, Fannsi skoraði 13 og tók 13 fráköst. Jonni var frábær í fráköstum, tók 10 slík, og varðist afar vel.
Aðrir skiluðu hlutverki sínu einnig vel, Derrick með 14 stig og 11 frák, varði 6 skot (!), Gunnar E með 7 stig, Arnar 5 stig og 5 frák, og Nick með 6 stig, 6 frák og 6 stoðs, sem er nú afar lítið á þeim bænum, enda kappinn greinilega orðinn orkulítill. En það kom ekki að sök, þar sem aðrir voru klárir í að taka við keflinu.
Liðsvörnin var frábær, mikill pressu var beitt, sérstaklega á Dickerson. Hraðinn var góður og náðu heimamen ekki að róa leikinn eins og þeir hefðu þurft. Stigaskorið var samt frekar lágt hjá báðum liðun, þar sem skotnýtingin var ekkert sérstök. En baráttan var til fyrirmyndar hjá okkar mönnum og sem dæmi má nefna að við tókum 55 fráköst á móti 41 hjá Snæfelli.
Næsti leikur er á laugardaginn kl. 16 í Sláturhúsinu.