Fréttir

Karfa: Karlar | 11. október 2010

Snæfell lagði Keflavík

Snæfell lagði Keflavík í kvöld í Hólminum, en lokatölur leiks voru 90-81. Snæfellsmenn voru meira og minna yfir allan leikinn en þó vantaði lítið upp á að Keflvíkingar næðu að komast almennilega inn í leikinn í loka-leikhlutanum. Staðan í hálfleik var 46-41. Lokamínútur leiksins gerðu útslagið og Snæfellsmenn sterkari.

Hjá Snæfell var Sean Burton stigahæstur með 29 stig. Ryan Amaroso skoraði 20. Sigurður Gunnar Þorsteinsson átti góðan leik í kvöld og skoraði 29 stig og tók 9 fráköst. Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 23 stig.