Snæfellsstúlkur lagðar - Tindastóll mætir aftur í kvöld
Keflavíkurstúlkur héldu sigurgöngu sinni áfram í gærkvöldi með sigri á Snæfellsstúlkum í Stykkishólmi. Keflavík var meira með forystu í fyrri hálfleik og setti í turbo gírinn í 3ja leikhluta þar sem þær gerðu út um leikinn. Lokatölur 70-97.
Jackie Adamshick skoraði 26 stig, Birna Valgarðs 23, Pálína 18, Bryndís 15 og 14 fráköst. Hjá Snæfell var Sade Logan atkvæðamest með 18 stig.
Í kvöld mæta svo Stólarnir aftur í heimsókn og verður vonandi hefndarþorsti í Keflavíkurliðinu. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og sannir stuðningsmenn hvattir til að láta sjá sig.