Spá félaganna 2010: karlar 2. sæti og konur 1. sæti
Klukkan 14:00 í dag var blaðamannafundur KKÍ fyrir Iceland Express -deildina 2010-2011 haldinn í Laugardalshöllinni. Þar voru kynntar spár fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna um lokastöðu deildarinnar. Karlaliði Keflavíkur var spáð 2. sæti og konuliði 1. sæti. Spáin er eftirfarandi:
Spáin 2010-2011 · Konur
1. Keflavík
2. KR
3. Haukar
4. Hamar
5. Snæfell
6. Grindavík
7. Njarðvík
------------
8. Fjölnir
Spáin 2010-2011 · Karlar
1. KR
2. Keflavík
3. Snæfell
4. Stjarnan
5. Grindavík
6. Njarðvík
7. Fjölnir
8. ÍR
9. Hamar
10. KFÍ
------------
11. Haukar
12. Tindastóll
Á sama tíma var blaðið Karfan formlega gefið út en líkt og undanfarin ár er að finna í því veglega umfjöllun og nú einnig skemmtilegar greinar.
Í blaðinu eru liðin í Iceland Express-deildum karla og kvenna kynnt til leiks í máli og myndum auk þess sem leikmannalistar þeirra eru kynntir. Sérstakir álitsgjafar spá í liðin og gefa sitt álit og spá fyrir um hvernig þeim mun vegna í baráttunni í vetur.
Blaðið er hægt að nálgast í afgreiðslunni í Toyota Höllinni.