Spáð í spilin
Nú þegar 6 umferðir eru eftir hjá Keflavík er gaman að velta aðeins fyrir sér stöðunni í deildinni. Keflavík er efst með 26 stig og á 6 leiki eftir. Þeir eru eftirfarandi: KR heima á fimmtudaginn, Grindavík úti 17 febrúar, Hamar/Selfoss heima19 febrúar, Skallagrímur úti 24 febrúar. Njarðvík heima 27 febrúar og Fjölnir úti 3 mars. Það eru því eftir 3 heimaleikir og 3 útileikir og má búast við hörkuleikjum. Þau fjögur lið sem eru efst hafa verið í svolitlum sérflokki, Keflavík, Snæfell, Njarðvík og Fjölnir. Keflavík á eftir að mæta 2 þeirra.
Njarðvík er með 24 stig og á eftir að spila 5 leiki. Þeir eru eftirfarandi Snæfell úti, Fjölnir úti, Tindastóll heima, Keflavík úti og Hauka heima. 3 útileikir og 2 heimaleikir. Njarðvík á eftir að mæta öllum toppliðunum.
Snæfell er með 24 stig og á eftir að spila 6 leiki. KFI úti, Njarðvík heima, ÍR úti, Fjölnir heima, KR úti og Tindastóll heima. 3 útileikir og 3 heimaleikir. Snæfell á eftir að mæta 2 af toppliðunum.
Fjölnir er með 24 stig og á eftir að spila 5 leiki. Skallagrím úti, Njarðvík heima, Snæfell úti, Tindastól úti og Keflavík heima. 3 útileikir og 2 heimaleikir. Fjölnir á eftir að mæta öllum toppliðunum.
Þar fyrir neðan er líka mikil spenna þau lið sem þar eru: ÍR með 18 og á 6 leiki eftir, Skallgrímur með 18 og 5 leiki eftir, KR 16 stig og 6 leiki eftir, Grindavík 14 og 6 leiki eftir og svo koma Hamar/Selfoss í 9 sæti með 12 stig og 5 leiki eftir og Haukar í 10 sæti með 10 stig og 6 leiki eftir, Tindastóll í 11 sæti með 8 stig og 6 leiki eftir.
Það er því mikil spenna framundan og 4 til 5 lið að berjast um 8 sætið í deildinni og síðasta sætið inn í úrslitakeppinna. Ásamt því að eitt af þeim fellur niður í 1 deild.
KFÍ er svo neðst með 2 stig og á mjög veika von um að halda sér í deildinni.