Fréttir

Körfubolti | 23. nóvember 2004

Spjall við Fal og tölur úr leiknum

Falur Harðarson, aðstoðarþjálfari, var að vonum ánægður með sigurinn í kvöld. Hann sagði að liðið hefði leikið frábærlega og komst þannig að orði að það væri einfaldlega allt annað Keflavíkurlið sem mætti í Evrópukeppnina, líkt og í fyrra. En nú tókst eitt sem ekki tókst í fyrra, og það var að landa sigri á útvelli. Sigurinn gegn Toulon á heimavelli í fyrra var fyrsti sigur íslensks liðs gegn Frönsku A-deildar liði yfirhöfuð og nú kom fyrsti sigurinn gegn Frökkum á útivell. Heilmiklar framfarir í gangi.

Falur sagði að baráttan og vörnin hefðu verið til fyrirmyndar og að einbeitingin hefði verið góð allan leikinn. Það sést vel á því hve góð hittnin var, yfir 60% í tveggja stiga og yfir 50% í þriggja sem er frábært, ekki síst á útivelli.

Falur sagði að lokum að nú myndu menn gleðjast varlega í kvöld og síðan vakna snemma í fyrramálið. Þeir halda á brott snemma en eyða mest öllum deginum í London, koma til Íslands undir miðnætti.

Eftir heimkomuna hvíla menn lúin bein og svo er haldið til Selfoss um kvöldið þar sem leikið verður gegn Hamri-Selfoss á fimmtudagskvöldið kl. 19.15. Eftir þann leik er smá pása og svo stórleikur í Sláturhúsinu á sunnudaginn í Bikarnum gegn nýkrýndum Hópbílameisturum Snæfells.

Hér má sjá tölur úr leiknum.