Spjallið í pásu
Það hefur verið gaman að sjá hve margir sýna Fannari samhug vegna málaflutnings DV á dögunum. Ansi margir eru greinilega á þeirri skoðun að ósmekklegt og óviðeigandi sé af DV að fjalla um viðkvæmt mál sem þetta á þennan hátt, með myndbirtingu, nafngreiningu og stórum fyrirsögnum, ekki síst þegar málið er enn á rannsóknarstigi.
Fleiri en nokkru sinni fyrr hafa skrifað á spjallið og nánast allir hafa skrifað til að sýna Fannari stuðning og gildir einu hvort um er að ræða samherja eða andstæðinga á íþróttavellinum. Góðar kveðjur hafa t.d. borist frá Njarðvík, Grindavík, KR, Val, ÍR, Borgarnesi, Snæfelli, Tindastóli, Ísafirði o.fl. Þetta veitir Fannari stuðning í baráttunni.
En einmitt vegna þess að þetta mál er viðkvæmt hefur verið ákveðið að loka spjallinu um sinn. Opnum von bráðar að nýju.
Vefstjóri.