Spjallið komið upp aftur
Jæja kæru netverjar, nú höfum við ákveðið að gera aftur tilraun með spjall á heimasíðunni. Við vonum að þið kunnið vel að meta það og takið þátt í skemmtilegum umræðum um körfuboltann. Mönnum er auðvitað heimilt að skrifa undir dulnefni og mönnum er einnig heimilt að gagnrýna og rífa kjaft . . ef svo ber undir . . :). En mönnum er algerlega óheimilt að vera með persónulegar svívirðingar - það segir sig sjálft.
Og svo vonum við bara að spjallið auki og efli umræðuna um boltann . . . og vonum að það fái að vera í friði fyrir skemmdarvörgum.