Fréttir

Körfubolti | 21. apríl 2007

Staða mála

Ný stjórn KKDK verður kjörinn á næstunni og mun hún líklega innihalda reynslubolta sem og nýliða. Þeir sem mynda uppistöðuna í fráfarandi stjórn og þeirri næstu hafa fundað stíft á liðnum vikum vegna framhaldsins í málefnum meistaraflokka Keflavíkur. Þessa dagana er verið að ganga frá tæknilegum hlutum, gera upp leiktíðina og svoleiðis og á næstu dögum verður gengið til samninga við leikmenn og þjálfara.

Vonir standa til þess að flestir leikmenn verði áfram í herbúðum Keflavíkur, auk þess sem styrkingar verða gaumgæfilega athugaðar. Þjáfaramál verða vonandi kláruð í næstu viku. Vegna umræðna sem eru nú í gangi er ekki hægt að segja mikið meira, en heimasíðan mun á næstu dögum birta upplýsingar eftir því sem hlutirnir gerast.