Staðan í riðlinum
Eftir ósigurinn sorglega gegn Bakken s.l. fimmtudag voru menn farnir að vera svartsýnir á áframhaldandi þátttöku okka í Evrópukeppninni. En með stórglæsilegum útisigri hefur málið opnast upp á gátt á ný. Skoðum aðeins stöðuna (ath. að tvö stig fást fyrir sigur, en eitt stig fyrir tap):
- Keflavík 4 leikir - 3 sigrar - 7 stig
- Bakken 3 leikir - 2 sigrar - 5 stig
- Reims 4 leikir - 1 sigur - 5 stig
- Madeira 3 leikir - 1 sigur - 4 stig
Ýmislegt er síðan mögulegt:
- Tvö efstu liðin komast sjálfkrafa áfram í 8 liða úrslit Mið- og Vesturdeildar Bikarkeppni Evrópu
- Alls verða þá 16 lið eftir í keppninni, hin 8 eru að norðan og austan.
- Það eru þrír riðlar í Mið- og Vesturdeild, alls komast 8 lið áfram, 2 efstu úr hverjum riðli og síðan þau tvö sem hafa bestan árangur í 3ja sæti.
- Þannig að fyrstu tvö sætin tryggja áframhaldandi þátttöku, þriðja sætið gefur enn möguleika.
- Ennþá er sá möguleiki fyrir hendi að öll liðin vinni þrjá leiki og tapi þremur og fái þannig öll 9 stig.
- Ef það gerist þá gildir stigaskorið, og þar stöndum við vel að vígi.
- Ef við vinnum einn leik í viðbót lendum við pottþétt í fyrsta eða öðru sæti.
- Ef við vinnum báða erum við efstir, no matter what
- Ef við töpum báðum sem eftir er munum við fá 9 stig, eins og fyrr segir. Ómögulegt er að ráða í þá stöðu, því allir eru að vinna alla, ef svo má segja. En ef Reims tapar einum leik til viðbótar, þá getum við ekki lent neðar en í þriðja sæti með góðan séns á framhaldi.
- Eins og lesendur sjá, er ennþá allt opið, en vissulega verða möguleikar okkar að teljast þó nokkrir.