Fréttir

Körfubolti | 19. nóvember 2003

Stærðin skiptir ekki máli !

"Stærðin skiptir ekki máli" sagði Falur Harðarson eftir sigurleik Keflavíkur gegn stórum og stæðilegum leikmönnum frá Ovarense á dögunum. Frakkarnir í Toulon geta tekið undir þetta, því þeirra besti leikmaður er Bandaríkjamaðurinn Jason Rowe sem er aðeins um 1,73 á hæð. En krafturinn í drengnum er ótrúlegur. Myndin hér að neðan sýnir Rowe troða í síðasta leik Toulon þar sem þeir lögðu Bourg 89-66. (Smellið á myndina til að stækka hana).