Stelpubúðir KKÍ og Domino´s í Toyotahöllinni á laugardag
Næsta laugardag munu KKÍ og Domino´s standa að stelpubúðum fyrir 10 ára og eldri en stelpurnar munu þá æfa með íslenska landsliðinu. Æfingin fer fram í Toyota-höllinni í Keflavík næsta laugardag og hefst kl. 10:00. Keflavíkurstúlkur munu eiga sína fulltrúa í landsliðinu en meðal þeirra sem kallaðar hafa verið í hópinn eru þær Pálína Gunnlaugsdóttir, Sara Rún Hinriksdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir og Ingunn Embla Kristínardóttir.
Um er að ræða tveggja tíma æfingu en eftir æfinguna verður pizzuveisla í boði Domino´s og fá stelpurnar svo að fylgjast með A-landsliðinu og spyrja landsliðstelpurnar spurninga sem brennur á þeim.
Skráning fer fram á kki@kki.is og síma 514 4100.