Stelpurnar - Íslandsmeistarar 2004
Stúlkurnar tryggðu sér 11. titilinn í kvöld á 17 árum þegar þær lögðu ÍS af velli 85-56.
Stúdínur byrjuðu betur í kvöld höfðu 2ja stiga forskot eftir fyrsta leikhluta 15-17.Einhver skjálfti virtist vera í herbúðum Keflvíkinga í byrjun leiks og Stúdínur nýttu sér það. Í upphafi annars leikhluta tók Svava við og breytti leiknum skoraði tvær 3ja stiga og eitt three point play kom Keflavík í 27-19 eitthvað bakslag kom í leik Keflavíkur munurinn varð 3 stig 33-30 Erla Þorsteins setti þá niður tvo þrista undir lok fyrri hálfleiks. Staðan í leikhléi 39-32.
Í þriðja leikhluta gerði Keflavík út um leikinn náðu 15 stiga forskoti. Anna María batt vörnina saman eftir það fór herdeild Sigurðar Ingimundarsonar í gang, skoruðu körfur út um allan völl. Ungu stelpurnar komu sterkar inn á lokakaflanum og héldu áram að þjarma að Stúdínum
11. Íslandsmeitaratitilin staðreynd. Menn hafa á orði að þetta sé eitt besta félagslið frá upphafi kvennakörfunnar hér á landi. Famtíðin er björt þar sem liðið er ungt en með ótrúlega reynslu. Flestar hafa stúlkurnar fagnað feiri en einum Íslandsmeistaratitli. Anna María hefur hampað flestum titlum í meistaraflokk alls 11 öllum sem kvennalið Keflavíkur hefur unnið frábært afrek.
Til hamingju stelpur
ÁRAM KEFLAVÍK