Stelpurnar eiga góða möguleika á Bikartitli gegn KR á morgun
KR og Keflavík hafa borið höfuð og herðar yfir önnur lið í kvennakörfunni á undanförnum árum og aðeins einu sinni á síðustu 19 árum hefur Bikarúrslitaleikur kvenna farið fram án þátttöku annars eða beggja af þessum félögum. Það segir svolítið um þeirra styrk.
En hverju mega áhorfendur eiga von á núna? Skoðum fyrst KR. KR er kannski fyrst og fremst tveggja manna (kvenna) lið, þar sem Hildur Sigurðardóttir og Katie Wolfe bera uppi leik liðsins. Þær skora að meðaltali tæp 20 stig hvor og gera því tæplega tvo þriðju af stigum liðsins. Einnig eru þær sterkir frákastarar, sérstaklega Hildur, og taka, ásamt Lilju Oddsdóttur, bróðurpartinn af fráköstum liðsins. Annars hefur Hildur leikið gríðarlega vel í vetur og hefur kannski, að öðrum ólöstuðum, verið besti leikmaður 1. deildar kvenna í vetur. 3ja stiga nýting KR-liðsins hefur ekki verið sérlega góð, aðeins um 24% og tveggja stiga nýtingin aðeins tæp 40%. En þær geta verið grimmar í vörninni, og ef þær Hildur og Katie fá að leika lausum hala, þá er voðinn vís.
Okkar lið er hins vegar mun jafnara og byggir ekki á fáum leikmönnum. Þó eru þær Birna, Anna María og Erla Þorsteinsdóttir vissulega lykilmenn í fráköstum og baráttu undir körfunum, enda öflugir skorarar og frákstarar. Þær skora mikið en annars er liði mjög jafnt og breiddin er kannski aðalstyrkleikinn. Ungu stúlkurnar, María Ben og Bryndís, hafa leikið sérlega vel í vetur, og þar fyrir utan er her kvennmanna sem eru góðir körfuboltamenn. Erla R, Rannveig, Svava, Marín og Halldóra hafa allar átt góða leiki og spurningin er bara hver þeirra “stígur upp” á morgun.
Ljóst er að varnarleikur Keflavíkur beinist að þeim Hildi og Katie en KR-ingar þurfa að hafa áhyggjur af öllu Keflavíkurliðinu, þótt þær munu eflaust mest reyna að stöðva Erlu Þ inní teignum, hugsanlega með svæðisvörn. Hinar verða þá að vera áræðnar og keyra vel upp hraðann, því Keflavíkurliðið leikur best þegar leikurinn er hraður og fjörið er mikið. Hættan felst í því að fara að spila of varlega, því þá getur sóknarleikurinn orðið stirður. en þetta vita stúlkurnar og þjálfarinn mæta vel, og því megum við eiga von á hröðu og grimmu Keflavíkurliði í bikarleik kvenna á morgun.
Heimasíðan hefur tröllatrú á stúlkunum og óskar þeim alls hins besta í baráttunni.
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!