Stelpurnar í Hveragerði á morgun
Kvennalið Keflavíkur leggur land undir fót á morgun og skellir sér í Hveragerði. Þar mæta þær sterkum Hamarsstúlkum í 4-liða úrslitum Lengjubikarsins. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og eru sannir stuðningsmenn hvattir til að mæta og styðja við bakið á stelpunum.
Áfram Keflavík!