Fréttir

Karfa: Konur | 30. janúar 2010

Stelpurnar komnar í úrslit Subway-bikarkeppninnar!

Keflavíkurstúlkur tryggðu sér sæti í úrslitaleik Subway-bikarkeppninnar þegar þær lögðu Fjölnir að velli 48-97. Það var aldrei spurning hvort liðið myndi landa sigri í leiknum og tókst öllum leikmönnum Keflavíkur að skora. Atkvæðamest var Kristi Smith með 20 stig. Það kemur í ljós annað kvöld hvort Keflavíkurstúlkur mæti Haukum eða Njarðvík í úrslitaleiknum.

Til hamingju stelpur og nú er það bara að leggja Snæfell að velli í Subway-bikar karla og hafa þetta tvöfalda veislu í Laugardalshöllinni.

Áfram Keflavík!