Stelpurnar komust áfram í Bikarnum en strákarnir duttu úr leik
Karlalið Keflavíkur mun ekki vinna tvöfalt í ár líkt og tvö undanfarin ár, sá draumur er úti eftir tap gegn Njarðvík í kvöld, en stúlkurnar eiga hins vegar enn góðan möguleika á að verja báða stóru titlana sína, því þær unnu ÍS.
Fyrri leikurinn í dag var leikur kvennaliða Keflavíkur og ÍS. Keflavík hóf leikinn af miklum krafti og komust stúlkurnar í 20-2 með gríðarlega grimmri pressuvörn sem setti gestina alveg út af laginu. Eftir það jafnaðist leikurinn og Stúdínur náðu áttum. Munurinn fór niður í 10 stig og rokkaði síðan í kringum 10-15 stig allan leikinn. Í lokin var munurinn 19 stig, 79-60, og Keflavíkurstúlkur öruggar áfram í undanúrslit.
Eins og oft áður var það einna helst liðsvörnin sem skóp sigurinn hjá stúlkunum. Reyndar áttu þær erfitt með að hemja Signýju Hermannsdóttur undir körfunni, en hún skoraði grimmt. Sóknarleikur okkar stúlkna var ágætur, en eins og stundum áður, var oft óðagotið full mikið. En þá var gott að geta leitað til Önnu Maríu sem var skotviss að vanda. Reshea dreifði boltanum vel og þær Birna, Bryndís og María skoruðu grimmt undir körfunum.
Til hamingju með þetta stúlkur!
Strákarnir voru hins vegar ekki í stuði gegn beittum Njarðvíkingum í kvöld. Anthony Lackey skaut gestina í stuð í fyrri hálfleik á sama tíma og okkar mönnum virtist fyrirmunað að hitta í körfuna. 3ja stiga skotin sáust ekki og vítahittnin var skelfileg. Njarðvík var fetinu framar og þeir leiddu í hálfleik með þremur stigum, 48-51. Glover var firnasterkur og skoraði mest okkar manna, yfir 30 stig, en samt var hann oft óheppinn með skotin, þau virtist frekar rúlla uppúr en oní, ef svo má segja.
Seinni hálfleikur var kaflaskiptur, Kef byrjaði af krafti með Sverri Þór fremstan í flokki í vörninni, en svo náði skipulagsleysi tökum á sókninni og Njarðvík náði 10 stiga forskoti, 60-70, í lok þriðja leikhluta. Nick átti nokkur góð dræv og munurinn minnkaði og í hönd fór gríðarspennandi lokakafli þar sem allt gat gerst. Brenton átti síðan stærstu körfu leiksins með tvo menn í sér, vel utan 3ja stiga línunnar og kom Njarðvík tveimur stigum yfir þegar tæp hálf mínúta var eftir. Maggi fékk góða sendingu frá Nick og frítt 3ja stiga skot sem geigaði. Gunni braut á Sayman sem skoraði úr öðru vítinu en Kefarar náðu öðru ágætu 3ja stig skoti fyrir leikslok, en knötturinn vildi ekki ofaní og Njarðvík stóð uppi sem sigurvegari í sérlega spennandi leik. Lokatölur voru 90-87.
Segja má að við höfum fallið á okkar helsta styrkleika, því hittnin var langt undir því sem eðlilegt getur talist. En svona er körfuboltinn. Til að vinna sigur á góðu liði eins og Njarðvík þarf hittnin í það minnsta að vera í meðallagi, en sú var ekki raunin í kvöld, því miður.
Dómgæslan í leiknum var frekar skrautleg, það voru flestir sammála um, en engu að síður var sigurinn sanngjarn. Til hamingju með það Njarðvíkingar!
Nú er það næsti stórleikur, en hann er á fimmtudaginn í Sviss gegn Benetton Fribourg í 8 liða úrslitum Mið-og vesturdeildar Bikarkeppni Evrópu. Vonandi finnum við fjalirnar á gólfinu í Fribourg . . . :)