Stelpurnar mæta stjórninni á laugardag
Á laugardag mætast kvennalið Keflavíkur og stjórn KKDK í árlegum körfuboltaleik en leikurinn fer fram í íþróttahúsinu Sunnubraut kl. 12.00. Það er skemmst frá því að segja að stjórnin sigraði í leiknum í fyrra en stelpurnar vilja örugglega bæta fyrir það í ár. Lokahóf KKÍ fer svo fram um kvöldið í Stapanum.