Stelpurnar mæta Val í Lýsingarbikarnum í dag
Keflavík mætir Val í Lýsingarbikarnum í dag kl. 16.00. Stelpurnar vilja örugglega sýna sig og sanna eftir óvænt tap gegn þeim á þriðjudaginn en sá leikur var tvíframlengdur. Í þeim leik skoraði Molly Petermann 38 stig og stal 10 boltum fyrir Val og nokkuð ljóst að hana verður að stoppa í dag.
Stelpurnar þurfa þinn stuðning í dag, leikurinn hefst kl. 16.00 í Vodafonehöllinni.