Fréttir

Karfa: Karlar | 6. janúar 2008

Stelpurnar með fyrsta Keflavíkursigurinn í ár

Fyrsti Keflavíkursigurinn leit dagsins ljós þegar Keflavík vann sigur á Fjölni í Iceland Express-deild kvenna 109-77.  Keflavík er því áfram á toppnum með 22. stig en KR er í öðru sæti með 20.stig. Næsti leikur liðsins er á þriðjudaginn gegn Val í Vodafonehöllinni og hefst leikurinn kl. 20.00

Birna Valgarðsdóttir lék sinn fyrsta leik á tímabilinu en hún er komin til baka úr barneignarfríi.  Einnig lék Susan Biemer sinn fyrsta leik með Keflavík en henni er ætlað að fylla í skarðið sem Bryndís Guðmundsdóttir skildi eftir sig.

Næstu leikir

Susan Biemer er 29 ára gömul og hefur verið í þýska landsliðinu síðan árið 2001. Hún lék í 2. deildinni á Ítalíu áður en hún kom til Íslands en Jón Halldór sagði að liðið sem hún spilaði með á Ítalíu hafi ekki staðið við sínar skuldbindingar og því hafi hún verið á lausu.