Fréttir

Körfubolti | 16. febrúar 2004

"Stelpurnar okkar" - ráðstefna um konur og íþróttir

Laugardaginn 21. febrúar n.k. standa ÍSÍ og KHÍ fyrir ráðstefnu um konur og íþróttir sem ber yfirskriftina ,,Stelpurnar okkar!".

Markmiðið með ráðstefnunni er að skoða nánar þætti sem hafa áhrif á íþróttaþátttöku stúlkna s.s. heimilið, skólaíþróttir, íþróttafélög og fjölmiðla. Leitast er við að meta hvernig staðan er í dag og koma með hugmyndir um hvernig við getum gert enn betur. Auk fjölmargra íslenskra fyrirlesara munu tveir erlendir fyrirlesarar vera með erindi:

  • Dr. Mari Kristin Sisjord er dósent við Íþróttaháskólann í Osló og mun hún fjalla um unglinga, menningu og snjóbretti (Only sport for the tough guys? Gender, youth, culture and snowboarding).
  • Dr. Fiona Dowling er einnig dósent við Íþróttaháskólann í Osló og mun hún fjalla um skólaíþróttir út frá sjónahorni kynjanna (Are physical education classes for all girls and boys?).

Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem koma að íþróttum og öðru tómstundastarfi almennt s.s. þjálfurum, kennurum, iðkendum, stjórnendum, foreldrum og öllum öðrum áhugasömum..

Nánari upplýsingar er að finna hér.