Keflavíkur-stúlkur gerðu sér ferð upp á Stykkishólm fyrr í kvöld og endaði sú ferð með sigri á Snæfells-stúlkum, 65-81. Keflavík komst yfir á upphafs mínútum leiksins og héldu þær sterkri forystu út allan leikinn, voru ávallt 10-20 stigum á undan, sem gerði það að verkum að sigur þeirra var aldrei í verulegri hættu. Atkvæðamest hjá Keflavík var Birna Valgarðsdóttir með 19 stig, en Bryndís Guðmundsdóttir kom á eftir henni með 18 stig. Hjá Snæfell var Sherell Hobbs með 17 stig og á eftir henni kom Björg Einarsdóttir með 15 stig.