Fréttir

Karfa: Konur | 27. október 2011

Stelpurnar tóku sigur í Vodafone Höllinni

Keflavíkurstúlkur lögðu Valsstúlkur að velli í kvöld, en leikið var í Iceland Express deild kvenna og fór leikurinn fram í Vodafone Höllinni. Lokatölur leiksins voru 70-84 fyrir Keflavík.

Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik og virtist sem svo að Keflavík ætlaði aldrei að ná að hrista Valsstúlkur af sér, þrátt fyrir að það hafi verið góður stígandi í Keflavíkurliðinu. Hálfleikstölur voru 35-41.

Seinni hálfleikur var mun þéttari hjá Keflavík og hægt og bítandi náðu þær að skapa gott forskot í leiknum, sem Valsstúlkur reyndu hvað þær gátu að saxa á, en án árangurs. Sigurinn var öruggur undir lokin og lokatölur 70-84 eins of fyrr segir.

Pálína Gunnlaugsdóttir gerði 27 stig, Birna Valgarðsdóttir 16, Jaleesa Butler 15 (15 fráköst einnig) og Sara Rún Hinriksdóttir 13.