Sterkur lokakafli tryggir 10 stiga útisigur gegn Stólunum – Saunders með 24 stig
Það var vitað að ekki yrði auðsótt gull í greipar Tindastólsmanna á Sauðárkróki, enda hafa þeir oftar en ekki unnið Keflavík á heimavelli, alls 8 sinnum í síðustu 12 viðureignum. En nú sneru okkar menn blaðinu við og lönduðu mikilvægum sigri í toppbaráttu Intersportdeildarinnar.
Eftir ágætan Keflavíkursprett í byrjun voru það heimamenn sem höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleiknum á Króknum í gærkvöldi. Þeir voru grimmari og náðu um skeið ágætri forystu eftir mikinn sprett frá Kidda Gun Friðrikssyni sem smellti nokkrum bombum á gömlu félaga sína. Tindastóll hafði 7 stiga forskot í hálfleik, 51-44.
En í seinni hálfleik tók Magnús Gunnarsson ágætan sprett og kom okkur inní leikinn á ný, hann setti 10 stig á stuttum kafla. Keflavík náði forystunni og fór í síðasta leikhlutann með 2ja stiga forskot, 64-66. Síðasti leikhlutinn hefur oft ekki verið sá besti framan af vetri, en kannski fer að verða breyting þar á, menn muna eftir glimrandi spretti gegn Njarðvík í bikarnum og aftur núna voru Keflvíkingar mun sterkari aðilinn í lokin.
Davíð Jónsson átti þar stóran hlut að máli, hann kom inná þegar lítið var eftir af þriðja leikhluta og lék út leikinn. Hann stýrði leiknum af prýði og skoraði m.a. 7 stig. Forskotið var ekki gefið eftir og Keflvíkingar náðu nokkuð öruggum 10 stiga sigri, 82-92.
Nýji maðurinn, Ed Saunders, átti prýðilegan leik, hirti mikið af fráköstum og skoraði 24 stig, nýtti 11 af 16 skotum sínum. Hann fellur greinilega vel í liðið. Damon var öllu rólegri og nýtti færin sín ekki vel, skoraði aðeins 16 stig sem þykir lítið á þeim bænum. Gaui var hins vegar skotvissari, setti m.a. þrjá þrista úr fimm tilraunum og skoraði 13 stig. Sverrir var grimmur að vanda í vörninni, en skoraði auk þess 10 stig og hirti 7 fráköst.
Heilt yfir var fyrri hálfleikurinn frekar rysjóttur en menn léku af skynsemi í lokin og nú er ekkert að vanbúnaði fyrir stórleikinn gegn ÍR í bikarnum á morgun.
- - - -
Hér að neðan má sjá hluta af leikmönnum og nokkra stjórnarmenn eftir stuttan fund á dögunum. Sérstaka athygli vekur maðurinn sem er á milli Gunna Stef og Sverris Þórs!!