Fréttir

Körfubolti | 10. desember 2004

Stigaskor úr leiknum

Það voru fjölmargir stuðningsmenn Keflavíkur sem fylgtust með leik Madeira og Keflavíkur í gær á fibaeurope.com.  En eitthvað var tölfræðin lengi að berast frá Portugal og því voru menn líka að fylgast með á spjallinu til að fá nýjar tölur. En stig Keflavíkur í gær skoruðu Maggi 20, Nick 19, Tony 13, Sverrir 11, Elli 9, Jonni 4, Gunni E. 3 og  Gunni Stef. 3

Það fór því svo að við náðum í 2 sætið og mætum því Beneton Fribourg Olympic frá Sviss. Aðal styrktaraðili liðsins er Beneton og búningar liðsins því grænir. Með liðinu leika 3 kanar, Shomari Cope Zebulun, David John Esterkamp og Werner Maximilian Nattiel.  Með liðinu leikur líka einn Kanandamaður Randall Allan Nohr.  Liðið er samkvæmt útreikningum fiba svipað að styrkleika og Keflavík.

 

logo