Fréttir

Körfubolti | 15. mars 2004

Stjórn körfuknattleiksdeildar lagði fram kæru gegn David Sanders

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum lagði stjórn körfuknattleiksdeildar fram kæru á hendur David Sanders, leikmanni Tindastóls, eftir leik félaganna s.l. laugardag. Kæran er þannig til komin að það var mat Keflvíkinga að Sanders hefði sýnt afar grófa og óíþróttamannslega hegðun í leiknum þegar hann sló Sverri Þór Sverrisson af hörku í andlitið. Keflvíkingar höfðu undir höndum myndbandsupptöku þar sem atvikið sést nokkuð vel. Það er mat Keflvíkinga að dómarar leiksins hafi ekki séð eða metið atvikið rétt.

Kæran fór til aganefndar KKÍ í morgun, mánudag, og hefur settur formaður aganefndar ákveðið að taka kæruna fyrir á morgun, þriðjudag. Keflvíkingar eru undrandi á þeim vinnubrögðum aganefndar að taka málið ekki fyrir strax því í reglugerð um aganefnd segir "Í úrslitakeppni allra flokka skal aganefnd kvödd saman um leið og kæra berst skrifstofu KKÍ. Formaður aganefndar ákveður tímamörk er gefin skulu aðilum til gagnaöflunar og skýrslugjafar í þeim málum, en málshraði skal vera eins mikill og kostur er." Keflvíkingar telja að auðvelt hefði verið að tryggja Sanders og Tindastóli réttlátt tækifæri á að skýra sitt mál, en samt afgreiða málið í dag. En settur formaður aganefndar ákvað að bíða einn dag og við það munum við auðvitað una.

Auðvitað eru kærumál álitamál, en það er álit Keflvíkinga að rétt hafi verið að kæra. Aganefnd mun úrskurða í máli þessu, væntanlega á morgun. Ljóst er þó að ef til refsingar kemur mun hún ekki hafa áhrif á einvígi Keflavíkur og Tindastóls.