Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 17. janúar 2008

Stjörnuleikir og troðslukeppni í Keflavík á laugardag

Á laugardaginn munu landslið karla og kvenna etja kappi við úrvalslið valin af þeim Benedikt Guðmundssyni og Jóni Halldóri Eðvaldssyni. Leikirnir fara fram í Keflavík á laugadag og er kvennaleikurinn kl. 13.30 og karlaleikurinn hefst kl. 15.30.

Landsliðsbúningar KKÍ verða til sölu á tilboði á leikjunum sem fara fram í Keflavík á laugardag.

Landsliðstreyjan - 3000 kr.
Landsliðsbuxur - 3000 kr.

Settið - 5000 kr.

Landsliðsmenn verða á staðnum til að gefa eiginhandaráritanir sé þess óskað.

Troðslukeppni hefur í gegnum tíðina alltaf vakið mikla athygli í kringum Stjörnuleikina í NBA og hafa aðrar þjóðir tekið keppnina upp.
Það hafa verið margar skemmtilegar troðslukeppnir hér á landi en þær eru bundnar því að þeir erlendu leikmenn sem leika hér hverju sinni séu einhverjir háloftafuglar. Á síðustu árum hefur reynst erfitt að fá aðila til að taka þátt.
Það var búið að gefa út að engin troðslukeppni yrði í ár þar sem ekki er um að ræða eiginlega stjörnuleiki en vegna fjölda áskorana þá hefur verið ákveðið að gera tilraun til að halda troðslukeppni.
Ákveðið hefur verið að veita peningaverðlaun upp á 100.000 krónur fyrir sigurvegarann.

Hægt er að skrá sig hér

Ágúst Sigurður Björgvinsson hefur valið eftirtalda leikmenn í sinn fyrsta landsliðshóp:

Fanney Guðmundsdóttir - Hamar
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir - KR
Hildur Sigurðardóttir - KR
Ingibjörg Vilbergsdóttir - Keflavík
Margrét Kara Sturludóttir - Keflavík
Jovana Lilja Stefánsdóttir - Grindavík
Ingibjörg Jakobsdóttir - Grindavík
Signý Hermannsdóttir - Valur
Petrúnella Skúladóttir - Grindavík
Sigrún Ámundadóttir - KR
Unnur Tara Jónsdóttir - Haukar
Kristrún Sigurjónsdóttir - Haukar



Sigurður Ingimundarson hefur valið eftirtalda leikmenn:

Hörður Axel Vilhjálmsson - Njarðvík
Magnús Þór Gunnarsson - Keflavík
Jón Hafsteinsson - Keflavík
Helgi Magnússon - KR
Hlynur Bæringsson - Snæfelli
Hreggviður Magnússon - ÍR
Brynjar Björnsson - KR
Páll Axel Vilbergsson - Grindavík
Jóhann Ólafsson - Njarðvík
Sveinbjörn Claessen - ÍR
Kristinn Jónasson - Fjölnir
Sigurður Þorsteinsson - Keflavík


Úrvalsliðin verða kunngerð síðar