Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 16. desember 2011

Stjörnuleikur KKÍ

Nú er hafin kosningin í byrjunarliðin tvö í Stjörnuleik karla 2012. Leikurinn fer fram laugardaginn 14. janúar og verður úrvalsdeildarliðunum skipt í tvennt, lið frá höfuðborgarsvæðinu skipa lið „Borgarinnar" og liðin af landsbyggðinni og Reykjanesinu lið „Landsins".

Hægt er að velja alla leikmenn liðanna en velja verður tvo bakverði, tvo framherja og einn miðherja í hvort lið og ekki má velja fleiri en tvo erlenda leikmenn í hvort byrjunarlið.

-> Smelltu hér til að kjósa <-

(Athugið að hver einstaklingur má skila inn einni kosningu)

Þjálfarar liðanna munu svo velja hina 7 leikmenn hvors liðs en þeir tveir þjálfarar sem verða á toppnum í deildinni eftir sunnudaginn kemur fá þann heiður að vera þjálfarar liðanna.

(Mynd-Lazar leikmaður Keflavíkur var valin leikmaður stjörnuleiksins árið 2010)