Fréttir

Körfubolti | 7. janúar 2004

Stjörnuleikurinn án Keflvíkinga í þetta skiptið

Um næstu helgi fer fram hinn árlegi stjörnuleikur KKÍ. Að þessu sinni fer hann fram án Keflvíkinga. Ástæðan er sú að ýmis konar meiðsli hafa herjað á lykilleikmenn liðsins í kjölfar mikils álags. Um er að ræða minni háttar tognanir og einnig öllu alvarlegri hluti, svo sem sinabólgur í hné hjá Jonna og, eins og menn vita, alvarleg hnémeiðsl hjá Fal. Af þessum sökum báðust Keflvíkingar undan þátttöku lykilleikmanna, þar sem í kjölfar stjörnuleiksins eru afar mikilvægir leikir og mjög þungt prógramm sem lítur svona út:

  • fimmtud. 15. jan - heimaleikur gegn ÍR í deildinni
  • laugard. 17. jan - leikur í undanúrslitum bikars (ef við komumst þangað)
  • þriðjud. 20. jan - útileikur gegn Dijon í Evrópukeppninni
  • föstud. 23. jan - heimaleikur gegn Dijon í Evrópukeppninni
  • miðvikud. 28. jan - útileikur gegn Dijon í Evrópukeppninni (ef til oddaleiks kemur)
  • föstud. 30. jan eða laugard. 31. jan - heimaleikur gegn Njarðvík í deild´
  • sunnud. 1. feb eða mánud. 2. feb - útileikur gegn Snæfelli

Sem sagt, 5 - 7 leikir á rúmum tveimur vikum og þar af margir sannkallaðir stórleikir, Evrópuleikir, Bikarleikir og grannaslagur. Þess vegna veitir okkar lykilmönnum ekki af þeirri hvíld sem möguleg er. KKÍ varð við okkar ósk um hvíld og kunnum við þeim hinar bestu þakkir fyrir.

Það er engu að síður okkar skoðun að stjörnuleikurin geti verið hin besta skemmtun og vonumst við svo sannarlega eftir því að svo verði einnig nú.