Stór Bikardagur á morgun!
Sunnudagurinn verður bikardagur í Sláturhúsinu. Kl. 18.15 leikar stúlkurnar gegn ÍS og síðan strákarnir gegn Njarðvík kl. 20.15.
Stelpurnar hafa haldið ótrauðar áfram á sigurbraut frá því í fyrra og bætt um betur, því þær hafa ekki tapað einum einasta leik (fyrir utan leikinn gegn Stjórninni:). Liðsheildin er sterk og valinn maður í hverju rúmi. Að vísu mun Marín Rós ekki leika meira með í vetur, þar sem hún gengst undir uppskurð á krossböndum á næstunni. Við óskum henni góðs bata. En breiddin er töluverð hjá liðinu og Rannveig og Svava hafa tekið við hlutverki Marínar, auk þess sem Reshea leikur mest sem bakvörður. Kristín Blöndal hefur hafið æfingar að nýju eftir barnsburðarleyfi og mun eflaust styrkja liðið með reynslu sinni. Keflavíkurliðið er feyknasterkt og í toppformi um þessar mundir.
ÍS hefur misst Lovísu (barnshafandi) og Hafdísi (meiðsli) úr liðinu og hefur ekki náð að fylgja eftir góðri byrjun. Signý og Alda Leif hafa leikið vel, en spurning var hvort ÍS myndi bæta Kana við liðið fyrir leikinn. Enginn Kani var kominn til liðsins í vikunni þegar þær léku gegn Haukum, og við höfum ekkert frétt af slíkum liðsauka. Sjáum hvað setur.
Það er ljóst að okkar stúlkur eru sigurstranglegar og við vonumst eftir góðum leik og fljúgandi ferð inn í undanúrslit.
Hjá strákunum er komið að endurtekningu á Bikarúrslitum frá því í fyrra (hér má lesa um Bikarúrslit 2004), en þá vann Keflavík nokkuð örugglega með um 20 stiga mun. Liðin hafa mæst þrisvar á þessari leiktíð, Njarðvík hafði sigur í Meistarakeppninni og í undanúrslitum Hópbílabikarsins, en Kef vann deildarleik skömmu fyrir jól. Væntanlega eru liðin óbreytt frá þeim leik og má auðvitað búast við topp-spennu-hágæða-leik á morgun, eins og oftast þegar þessir erkifjendur leiða saman hesta sína. Okkar menn hafa leikið vel eftir endurkomu Nicks og leika yfirleitt best þegar mikið liggur við. Njarðvík byrjaði leiktíðina með látum en síðan misstu þeir aðeins flugið, en voru greinilega í miklu stuði í vikunni á Ísafirði. Bæði lið ætla sér auðvitað sigur á morgun, því þetta er hálfgerður "míní-bikarúrslitaleikur" því liðið sem sigrar mun teljast sigurstranglegt í Bikarkeppninni, svo mikið er víst.
Bikarleikir eru oft skemmtilegustu leikirnir, því allt er lagt undir - og við hlökkum til að sjá flottan bolta í Sláturhúsinu á morgun.
ÁFRAM KEFLAVÍK!